Kosning.is

Kristbjörg Þórisdóttir

Kristbjörg Þórisdóttir
Auðkennisnúmer: 6582

Menntun / starfsreynsla

Ég lauk stúdentsprófi frá MR 1998, BA gráðu í sálfræði frá HÍ 2002 og diplóma gráðu í fötlunarfræðum 2006. Ég er að ljúka kandídatsnámi í sálfræði við Árósaháskóla. Ég hef m.a. starfað að málefnum fatlaðs fólks og aldraðra, unnið á sambýli í 8 ár og þar af veitt því forstöðu í 3 ár.

Hvers vegna býð ég mig fram til stjórnlagaþings?

Á Íslandi eiga allir að geta haft það gott. Í þeim erfiðleikum sem við mætum núna skapast sögulegt tækifæri til þess að endurskoða, læra og breyta samfélaginu til bjartrar framtíðar. Vönduð stjórnarskrá leggur grunninn að framúrskarandi samfélagi með öflugar grunnstoðir. Ég mun starfa með opnum huga, jákvæðni, krafti og metnaði sem fulltrúi þjóðarinnar á stjórnlagaþingi. Áhersluatriði mín eru m.a. mannréttindi, lýðræði, sjálfsákvörðunarréttur þjóðarinnar og þjóðareign á auðlindum. Einnig legg ég áherslu á þrískiptingu ríkisvaldsins, eflingu Alþingis og helstu stofnana þess. Ég hef það að leiðarljósi að gæðum lands, þjóðar og samfélags verði skilað vel til komandi kynslóða.

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s