Ég og nokkrar aðrar góðar konur, langar að bjóða öllum kvenframbjóðendum og öllum konum sem styrkja konur í partý í kvöld!! Endilega mætið með góða skapið, kannski eina rauðvín og fimmhundruðkall á Hallveigarstaði, Túngötu 14. Parýið byrjar kl 21!
Laugardaginn 13. nóvember, verður haldið boð/partí á Hallveigarstöðum þar sem konur í framboði til stjórnlagaþings bjóða konum að hitta sig og skemmta sér. Yfirskriftin er Konum eru konum bestar 🙂
Engin formleg dagskrá og ekki er ætlast til ræðuhalda. Þetta er hins vegar kjörið tækifæri fyrir konur í framboði að kynna sig og málefni sín og því hvetur Femínistafélag Íslands allar konur að mæta sem mögulega geta. Gestir eru beðnir að taka eigin drykkjarföng með. Inngangur verður 500 kr (eða frjáls framlög í reiðufé) við dyrnar til að dekka kostnað við eldhús og þrif. Húsnæðið er í boði Kvenréttindafélags Íslands.