Ég vil skilja á milli ríkis og kirkju í fjárhagslegum skilningi. Þjóðkirkjan haldi þó sínum sess sem hin opinbera kirkja landsins en standi fjárhagslega á eigin fótum.
Með þessu fyrirkomulagi verði fjárhagslegu jafnræði komið á í þessum málaflokki án þess að menningarsögulegum arfi þjóðkirkjunnar verði fórnað.